Ábyrgðir vegna tannlæknisverka
Tannklínikin veitir ábyrgð á tannlækna- og tannsmiðaverkum sem hér segir:
Tannfyllingar: Allar fyllingar 1 árs ábyrgð.
Undantekningar:
- Bráðabirgðarfyllingar: aðeins á meðferðar tímabili.
- Reynslufyllingar: aðeins á reynslutímabili (að hámarki 6 mán.)
Rótfyllingar: 1. árs ábyrgð.
Undantekningar:
- Sprungin rót
- Auka rótargangar
- Tilvísun og vinna hjá sérfræðingi
Föst tanngervi / postulíns krónur og brýr, allar gerðir allt að 5 ára ábyrgð samkv. eftirfarandi reglum:
- Á fyrsta ári 100%
- Ábyrgð minnkar eftir 1 ár um 20% á hverju ári
- Eftir 5 ár er engin ábyrgð
Undantekningar:
- Endurlímingar ábyrgð í eitt ár.
Gervitennur/ laus tanngervi: 1. árs ábyrgð
Undantekningar:
- Særindi / eftirmeðferð að meðferð lokinni (sjá almennt)
Tannplantar/ implant Verksmiðju ábyrgð ITI Straumann, Sviss: brotinn tannplanti
Ábyrgð annarra þátta tannplanta vinnu þ.e. smíða hluti tanngervi sjá almennar reglur.
Almennt:
Ef sjúklingur er ekki ánægður með þá þjónustu sem tannlæknar / tannsmiðir Tannklínikin ehf. veita vinsamlegast berið fram kvartanir innan eins mánaðar frá dags. þjónustu að öðrum kosti telst þjónustan ásættanleg.
Allar ábyrgðir falla úr gildi ef sjúklingur hefur ekki mætt í reglulegt eftirlit hjá Tannklínikinni, þ.e. börn og fullorðnir á eins árs fresti eða oftar að mati tannlæknis. Undantekningar eru vegna heilgóma.
Allar ábyrgðir falla úr gildi við hverskonar áverka eða slys.
Tilkynna þarf slys eins fljótt og kostur er á slysadeild.
Ef kemur í ljós að rótfylla þarf tönn eftir að meðferð hennar er lokið, þá þarf að greiða sérstaklega fyrir þá meðferð, en endurgerð fyllingar / smíði er í ábyrgð skv. ofangreindum skilmálum.