Faglegar áherslur

  • Forvarnir eru mikilvægasti þáttur tannlæknismeðferðar og leggjum við mikla áherslu á forvarnir.
  • Þægilegar tannlækningar. Margir hræðast að finna til hjá tannlækni og er hræðslan við það óþekkta mörgum fjötur um fót og þess vegna veigrar fólk sér gjarnan við að leita aðstoðar tannlækna. Meðferðin þarf að vera eins þægileg og kostur er, en eðli málsins samkvæmt er erfitt að koma algjörlega í veg fyrir óþægindi. Ljóst er að þeim mun reglulegar sem fólk kemur til eftirlits, þeim mun minni lýkur eru á að vandinn sé það mikill að veruleg óþægindi skapist. Því er lögð rík áhersla á að fullorðnir sem og börn og unglingar komi reglulega í eftirlit.
  • Í verstu tilfellum getum við boðið upp á svæfingu í meðferð og einnig kæruleysislyf til slævingar.
  • Fegrunartannlækningar, tannhvíttun. Úlit er mikilvægur þáttur í daglegu lífi, útlitskröfur eru miklar í nútímanum og skipar  munnholið, tennur og tannhold, þar stóran sess. Tannhvíttun með lýsingarskinnum „hreinsar” tennurnar af áunnum lit úr fæðu, meðferðin er árangursrík og skemmir ekki tennur sé rétt að málum staðið.
  • Tannplantar, fastar gervitannalausnir. Laus tanngervi skerða lífsgæði og getur það reynst bylting fyrir einstaklinga með laus tanngervi að geta fengið fasta lausn. Tannplanti er ein byltingakenndasta uppfinning í tannlækningum frá upphafi, þar sem sjúklingar geta í raun í allflestum tilvikum fengið fastar gervitannalausnir í stað hinna hefðbundnu fölsku tanngóma. 
  • Stafrænar röntgenmyndir – minni geislun. Hefðbundin filmu röntgenmynd er á undanhaldi en í staðinn hafa verið þróaðar ýmsar leiðir til röntgenmyndatöku. Kostir við  stafrænar leiðir má segja að séu miklu minni geislun en á móti kemur að búnaðurinn er oft fyrirferðarmikill og óþjáll í munni.
  • Fræðsla til sjúklinga okkar í máli og myndum. Nútímamaðurinn krefst upplýsinga og þekkingar og er það markmið okkar að sjúklingar séu vel upplýstir um ástand munnhols viðkomandi.
  • Tannsmíði. Við rekum okkar eigið tannsmíðaverkstæði, sem einungis er ætlað sjúklingum okkar. Þannig  getum við haft yfirsýn og stjórnað því verki sem á að vinna. Þar að auki höfum við náið samstarf við önnur valin tannsmíðaverkstæði í Reykjavík og erlendis vegna sérverkefna.
  • Endurkoma, allir sjúklingar okkar, sem ekki eru í meðferð, eiga að hafa endurkomu bókaða, þ.e. eftirlitstíma, t.d. eftir 3 mán., 6 mán., 1 ár.  Tölvukerfið okkar minnir á tímann með SMS skeyti 3 dögum fyrir heimsókn og aftur degi fyrir.
  • Vinsamlegast munið að breyta bókunum í tíma, því mikil aðsókn er alltaf í þjónustu í hjá okkur. Mætum vel, verum stundvís, það eru mikilvæg einkunnarorð til þess að sem bestur árangur náist. Við leggjum áherslu á að halda tímaáætlun en upp geta komið atvik sem valda seinkun. Við látum vita ef von er á mikilli seinkun.

Helstu áherslur fyrirtækisins

  • Menntun, þekking – góð kunnátta í faginu er lykill að farsælu starfi og þjónustan endurspeglast í menntun starfsfólksins.
  • Hreinlæti og sótthreinsun öll áhöld eru sótthreinsuð eða dauðhreinsuð milli sjúklinga eftir því sem við á. Einnig er notast við einnota áhöld ef ekki er unnt að hreinsa og þá fargað að lokinni meðferð. Reglulega eru gerðar prófanir á virkni búnaðar af Landspítala til að tryggja dauðhreinsun. Þar sem ekki er mögulegt að dauðhreinsa tannlæknastóla, bekki og borð á milli sjúklinga þá eru notað hlífðarplast til að hindra smitleiðir.

     

  • Samskipti við sjúklinga – mannleg samskipti eru mjög mikilvægur þáttur í starfsemi tannlæknastofunnar, enda felst starfið í aðhlynningu og umönnun sjúklinga, með hin ýmsu tannlæknisfræðilegu vandamál, sem við reynum að skilja og leysa eftir bestu getu.

     

  • Endurmenntuner mikilvægur þáttur í starfseminni. Tannlæknar okkar sækja sér reglulega endurmenntun.

     

  • Efnisval stórtækar breytingar eru í efnum og efnisfræði til tannlækninga, þar byggir á þrotlausri rannsóknarvinnu og er það markmið okkar að nota eingöngu viðurkennd og vottuð efni í öllum þáttum starfseminnar.

Hofsbót 4, 3. hæð